top of page
NIBE _ S735 in hallway.webp

Leiðbeiningar varðandi 
Varmadælur

Fáðu skilvirka og umhverfisvæna hitun með varmadælu

Það eru margar leiðir til að hita upp húsið, sumarbústaðinn eða vinnustaðinn og hvaða lausn ættir þú að velja?
NIBE varmadæla gæti verið besta lausnin.

Snjallvarmadælur frá NIBE fyrir allar fasteignir!

Varmadælur geta verið ódýrari valkostur ef þú ert að leita að nýjum varmagjafa. Hér finnur þú leiðbeiningar og upplýsingar um NIBE varmadælur og færð góð ráð um þá varmadælu sem best gæti uppfyllt þínar þarfir. 

Hvað er varmadæla?

image.png

Það eru til fjórar megin gerðir af varmadælum. Í grunnin sækja varmadælur orku úr umhverfinu og umbreyta í varma-orku til að nota innandyra. NIBE er einn stærsti framleiðandi af varmadælum í heiminum, með yfir 150 dótturfyrirtæki um allan heim og um 22.000 starfsmenn. Rannsóknar og þróunardeildir þessara fyrirtækja eru stöðugt að hanna, þróa og bæta framleiðsluna sem gerir NIBE einfaldlega fremstan meðal jafningja. 

Sameiginlegt fyrir allar varmadælurnar frá NIBE er falleg hönnun og snjalltækni til að hámarka nýtingu á orku, auðvelda stýringu á hita og kulda og loftræsingu. MyUplink hugbúnaðurinn er einn sá þróaðisti í heiminumí dag og gefur húseigendum möguleika á að stýra og stjórna hita, kulda og loftræstingu í húsum sínum allan sólahringinn beint úr símanum eða í gegnum tölvu. Hvaða NIBE varmadæla hentar þörfum þínum fer eftir ýmsum þáttum en hér að neðan er yfirtlit yfir helstu þætti sem hafa ber í huga við val á varmadælu frá NIBE en um fjórar megingerðir af dælum er að ræða.

1. Útloftunarvarmadæla (Exhaust air heat pump)
- varmadæla og loftræsting í einu kerfi - myglufrítt húsnæði! 

NIBE útloftunarvarmadælan er ein sniðugasta varmadælan á markaðnum í dag. Búnaðurinn samanstendur af varmadælu og loftræstikerfi. Tæknin felst í því að loftræsta húsið og taka síðan orku úr loftinu sem verið er að blása út og hita loftið sem dregið er inn í húsið. Þannig ertu með hita, frábær loftgæði og myglufrítt umhverfi. 

 

Vifta dregur loftræstiloft frá öllum blautum svæðum í húsinu (baðherbergi og þvottahús). Við það myndast örlítill undirþrýstingur sem veldur því að loft úr öðrum herbergjum ratar líka inn í blaut svæði hússins. Nýtt útiloft er dregið inn um loftop í útveggjum og loftræstir öll herbergi. Loftið er leitt í varmadæluna þar sem orkan er tekin upp af lokuðu kerfi og kalda loftinu er blásið út. Háþróuð varmaskipta tækni veldur því að hitinn hækkar og varminn er sendur til notkunar í hita- og heitavatnskerfi hússins.

image.png

Útloftunarvarmadælur geta lækkað rafmagnsreikninginn um 70 til 85% á ári miðað við hefðbundinn búnað. Þær eru í rauninni loft í vatn varmadælur en allur búnaður er staðsettur innandyra. Varmadælurnar eru með neysluvatns hitakút og flest það sem húskerfi þarf. Þessar varmadælur geta tengst ofna-, gólfhita- eða neysluvatnskerfi hússins. Einnig er hægt að tengjast sólarsellum til að framleiða eigin rafmagn og vera þannig með fría orku allt árið.

image.png

Staðreyndir um útloftunardælu

Allt í einni lausn. Hiti, heitt vatn og loftræsting í einni varmadælu. Tekur lítið pláss.

 

Fyrir nýrri hús. Ein dæla hentar fyrir allskonar hús allt að 240 m2. 

 

Betra inniloft. Betri inniloftgæði, loftræsikerfið er hluti af búnaðinum - Myglufrítt umhverfi!

 

Fljótleg uppsetning. allur búnaður er innandyra, sem er fljótlegt og auðvelt í uppsetningu.

 

Samhæft. Hægt að samtengja við sólarsellur og ná þannig enn meiri sparnaði.

Duglegar og umhverfisvænar

Auk þess að vera óhemju hagkvæm lausn og nota mikið af endurnýjanlegri orku, sem dregur úr kolefnisfótspori þínu, getur útloftunarvarmadælan skapað orkusparnað upp á allt að 70 til 85% á ári miðað við hefðbundinn búnað. Eina orkan sem þú borgar fyrir er rafmagnið sem knýr varmadæluna. Ef þú ert líka með sólarsellu þá þarftu kannski ekkert að kaupa rafmagn og þá er kerfið 100% sjálfbært.

Með skilvirkum útloftunarvarmadælum NIBE og þessari tegund af endurnýjanlegri orku geturðu skapað þægilegt inniloft og á sama tíma notið umhverfisvæns, endurnýjanlegrar og náttúrulegra orkugjafa sem draga úr CO2-losun hússins. Þær eru í rauninni loft í vatn varmadælur en allur búnaður er staðsettur innandyra. Varmadælurnar eru með neysluvatns hitakút og flestu öðru sem húskerfi þarf.  Þessar varmadælur geta tengst ofna-, gólfhita- eða neysluvatns-kerfi hússins.

2. Berg- / Jarð- / Vatnsvarmi
- sólarorka geymd djúpt í jörðu (Berg í vatn)

Jarðvarmi er hrein sólarorka sem geymd er í jörðu og notuð af jarðvarmadælu til upphitunar, kælingar, loftræstingar og til að hita upp neysluvatn. Jarðvarmadæla samanstendur af innivarmadælu og útisöfnunarkerfi sem dregur varma úr geymdri sólarorku með plaströri sem er látið síga niður í borholu í berginu. Þannig er orkan dregin úr berginu með vökvanum í safnrörinu og leiddur að varmadælunni sem síðan nýtir orkuna. Bergvarminn er sóttur með lokuðu rörakerfi sem virkar nánast án eftirlits í 50 ár öllu jafna. 

Háþróuð varmaskipta tækni í varmadælunni veldur því að hitinn hækkar og varminn er sendur til notkunar í hita- og heitavatnskerfi hússins. Síðan er vökvanum dælt aftur í berggrunninn og er hann þannig tilbúinn fyrir nýja upphitun. Sama kerfi er einnig hægt að nota til að kæla húsið yfir heitari hluta ársins.

image.png
image.png

Bergvarmadæla sem nýtir orku úr bergi. Borað er í bergið, rör látið síga niður í bergið og þannig er orkan dregin úr berginu með vökvanum í safnrörinu. 

Frostlögur er alltaf settur í svona rör svo þau þoli frost. 

Staðreyndir um bergvarma

Öflug og veðurvarinn. Rörin liggja varin í berginu, óháð veðri og vindum. Hentar bæði fyrir lítil og stór hús, traust og örugg lausn.

 

Langur endingartími. Líftími svona rörakerfis er um það bil 50 ár. 

 

Meiri fjárfesting og mikill sparnaður: Varmadæla, borun og uppsetning getur verið heilmikil fjárfesting en sem skilar sér yfirleitt eftir örfá ár.

 

Samhæft. Hægt að samhæfa á hagstæðan hátt með/við margvíslegan búnað. Sólarsellur, loftræstingu, kælingu og fyrir sundlaugarhitun.

Hljóðlátt og ósýnilegt. Kerfið er hljóðlátt, varmadælan með hljóðlausum, ósýnilegum orkusafnara. 

 

Jarðvinna.  Það þarf að bora í bergið og setja söfnunarrörin í borholuna. Þessi aðferð er notuð þar sem skortur er á jarðvegi - annars er notuð Jarðvarmadæla.

Duglegar og umhverfisvænar

Auk þess að vera óhemju hagkvæm lausn sem notar mikið af endurnýjanlegri orku, sem dregur úr kolefnisfótspori byggingarinnar, getur bergvarmadælan gefið orkusparnað upp á bilinu 70 til 85% á ári miðað við hefðbundinn búnað. Eina orkan sem þú borgar fyrir er rafmagnið sem knýr varmadæluna (enn minna ef notuð er sólarsella). 

Með skilvirkum bergvarmadælum NIBE og þessari tegund af endurnýjanlegri orku geturðu skapað þægilegt inniloftslag fyrir þínar þarfir og á sama tíma notið umhverfisvænna, endurnýjanlegra og náttúrulegra orkugjafa sem draga úr CO2-losun hússins. Allur búnaður nema söfnunarrörin er staðsettur innandyra varin fyrir veðri og vindum. 

Jarð- / Vatnsvarmi
- sólarorkan sem geymd er í grasflötinni eða í vatni/sjó (Vatn í Vatn)

Jarðvarmi er líkt og bergvarmi hrein sólarorka sem geymd er í yfirborði jarðarinnar. Hjá NIBE er talað um vöruheitið jarðvarmadælur hvort sem um er að ræða berg-, jarðvarma- eða vatnsvarmadælur. Meginreglan er sú sama, kerfinnota varmadælu innandyra og söfnunarkerfi utandyra. Eini munurinn er sá að rörin eru grafin í jörðu á eins metra dýpi í stað þess að bora holu í bergið.  

Þannig er orkan dregin úr jörðu með vökvanum í safnrörinu og leiddur að varmadælunni sem síðan nýtir orkuna. Jarðvarminn er sóttur með lokuðu rörakerfi sem virkar nánast án eftirlits í 50 ár öllu jafna. 

Á sama máta er hægt að setja rör í stöðuvatn, í sjóinn eða rennandi vatn sem ekki frýs s.s. eins  og í djúpan læk eða á. Allstaðar er sama prinsippið notað þ.e. að sækja sólarorku sem geymd er í þessum orkugeymslum. 

image.png

Hvort sem orkan liggur í grasflötinni, í stöðuvatni/sjó eða lækjum/ám

image.png

Varmadæla sem nýtir orku úr grasflötinni, móanum eða mýrinni. Best er að plægja rörin niður fyrir 1 metra sem tryggir að ekki frýs í kringum rörin.

image.png

Staðreyndir um jarð/vatnsvarma

Öflugur og veðurvarinn. Rörin liggja varin í jarðveginum, óháð veðri og vindum. Hentar bæði fyrir lítil og stór hús, traust og örugg lausn.

 

Langur endingartími. Líftími svona rörakerfis er um það bil 50 ár. 

 

Meiri fjárfesting og mikill sparnaður: Varmadæla, plæging á rörum í jörðina og uppsetning getur verið heilmikil fjárfesting en sem skilar sér yfirleitt innan fárra ára. 

 

Samhæft. Hægt að samhæfa á hagstæðan hátt með/við margvíslegan búnað. Sólarsellur, loftræstingu, kælingu og fyrir sundlaugarhitun.

Hljóðlátt og ósýnilegt. Kerfið er hljóðlátt,  varmadælan með hljóðlausum, ósýnilegum orkusafnara. 

 

Jarðvinna.  Það þarf helst að plægja rörin í jörð , leggja þau í vatn, sjó eða rennadi læk/á. 

Varmadæla sem nýtir orku úr stöðuvatni, sjó, lækjum eða ám. Mikilvægt er að ekki frjósi í kringum rörin og við bestu aðstæður er stöðugt flæði í kringum rörin þannig að orkuskiptin verða hröð. 

3. Loft í vatn varmadæla - dregur varma úr engu

Loft í vatn varmadælan samanstendur af útihluta, sem er varmadælan sjálf, og innihluta. Varma-dælan nýtir varmaorkuna í útiloftinu til að sjá húsinu fyrir hita og heitu vatni. Útiloftið sogast inn í gegnum varmadæluna, orkan er tekin upp af lokuðu kerfi og kaldara loftið er blásið út.

Háþróuð varmaskipta tækni í varmadælunni veldur því að hitinn hækkar og varminn er sendur til notkunar í hita- og heitavatnskerfi hússins. Sama kerfi er einnig hægt að nota til að kæla húsið á hlýjum hluta ársins. ​​

Loft í vatn varmadælurnar geta lækkað rafmagns-reikninginn um 60 til 80% á ári miðað við hefðbundinn búnað. Varmadælan er annað hvort staðsett innanhúss eða utan en það fer eftir gerð hennar. Þörf er á afísingu. Þessar varmadælur eru fáanlegar með neysluvatns hitakút. Loft í vatn varmadælur nota loft til orkuöflunar þannig að virknin fer eftir útihitanum.

image.png

Hægt er að tengja þessar varmadælur við ofna-, gólfhita- eða neysluvatnskerfi og öllum þeim kerfum sem hitaveita væri annars notuð í. Betri varmadælur í þessum hópi breyta framrásarhita eftir þörfinni sem er hverju sinni og hámarka þannig sparnað.

image.png

Varmadæla sem nýtir orku úr lofti. Nýtingin fer eftir veðri.

Staðreyndir um loft í vatn dælur

Fyrir öll hús. Hægt að setja í öll hús.

 

Samhæft. Hægt að sameina með góðum árangri við sólarsellur, loftræstingu og kælingu.

 

Mögulegur hávaði úti. Hávaðastig er mismunandi eftir hönnun og uppsetningu.

 

Engin vinna í lóðinni. Búnaðurinn er eingöngu settur á eða við byggingar. Samanstendur af innihluta og útihluta sem venjulega er komið fyrir við framhlið hússins. Fljótleg og auðveld uppsetning. 

4. Loft í loft varmadæla - dregur varma úr engu

Loft í loft varmadælur eru þær einföldustu sem í boði eru, spara um það bil 50-65%. á ári í flestum tilfellum. Varmadælan er staðsett úti með því orkutapi sem því fylgir og þörf er á afísingu.

 

Getur verið ódýr og góður kostur fyrir eitt rými sem ekki hefur dreifikerfi s.s. ofna eða gólfhita.

 

Loft í loft varmadælur nota loft til orkuöflunar sem gerir þær háðar veðri. Þessar varmadælur tengjast ekki ofna-, gólfhita eða neysluvatnskerfi.

Loft í loft varmadæla samanstendur af innieiningu og útieiningu. Dælan dregur varmaorku úr loftinu og í gegnum innieininguna berst varminn inn í húsið þar sem hann er notaður til húshitunar. Það skapar líka loftflæði í húsinu og þar með betri inniloftgæði. 

Loft í loft varmadælan er rafknúin en skilar 3,5 til 5 sinnum meiri varmaorku en hún notar af rafmagni. Þetta gerir varmadæluna að mjög hagkvæmum og umhverfisvænum valkosti í smærri heilsárshúsum, sumarbústöðum og útihúsum.

 

Tæknin í loft í loft varmadælunum er svo skilvirk að þær virka jafnvel í miklu frosti. Þess vegna geturðu alltaf verið viss um þægilegan herbergis- hitun. Loft í loft varmadæla er auðveld í upp-setningu og er hagkvæm fjárfesting með stuttum endurgreiðslutíma.

image.png

Staðreyndir um loft í loft dælur

Fyrir öll hús. Hægt að setja í öll hús.

 

Samhæft. Hægt að sameina með góðum árangri við sólarsellur, loftræstingu og kælingu.

 

Mögulegur hávaði úti. Hávaðastig er mismunandi eftir hönnun og uppsetningu.

 

Engin afskipti af lóðinni. Búnaðurinn er eingöngu settur á eða við byggingar. Saman-stendur af innihluta og útihluta sem venjulega er komið fyrir við framhlið hússins. Fljótleg og auðveld uppsetning. 

image.png
bottom of page